top of page

Verið velkomin á heimasíðu Eyjalistans.

Eyjalistinn er stjórmálafl í Vestmannaeyjum. Félagið er byggt á félagshyggju, jafnarstefnu og samvinnu. 

Eyjalistinn 2026

650618710_922017706855013_4754637125128277975_n (1).jpg

 

 

Uppstillingarnefnd Eyjalistans hefur nú lokið störfum og var tillaga að framboðslista kynnt og lögð fram til samþykktar á fjölmennum félagsfundi seinnipartinn í dag. Stjórn Eyjalistans tilkynnir hér með að listinn var samþykktur samhljóða og mikil ánægja var á meðal félagsfólks með listann.

Arna Huld Sigurðardóttir, formaður kom fram þökkum frá uppstillingarnefnd um þær fjölmörgu ábendingar sem þeim barst í ferlinu. Að auki þakkaði hún núverandi bæjarfulltrúum, Njáli Ragnarssyni og Helgu Jóhönnu Harðardóttur fyrir þeirra góðu vinnu en þau starfa að sjálfsögðu áfram fyrir Eyjalistann út þetta kjörtímabil.

Stjórn listans skynjar mikinn meðbyr og við förum með gleði og jákvæðni inn í komandi kosningar. Arndís María Kjartansdóttir er nýr oddviti listans en hún er kennari, löggiltur fasteigna, fyrirtækja- og skipasali ásamt því að hún nemur nám í jákvæðri sálfræði. Stjórnin bindur miklar vonir við gott samstarf við Arndísi ásamt öllum þeim sem bjóða sig fram, sem og félagsfólki!

Framundan hjá Eyjalistanum er áframhaldandi málefnavinna og virkt samtal við félagsfólkið okkar! X-E í vor!

Framboðslisti Eyjalistans 2026!

1. Arndís María Kjartansdóttir. Framhaldsskólakennari & löggiltur fasteigna, fyrirtækja- og skipasali. Meistaranemi í jákvæðri sálfræði.

2. Anton Örn Björnsson. Kennari & tómstunda- og félagsmálafræðingur.

3. Erlingur Guðbjörnsson. Rekstrarstjóri & varabæjarfulltrúi.

4. Hildur Rún Róbertsdóttir. Leikskólakennari & varabæjarfulltrúi.

5. Jessý Friðbjarnardóttir. Kennari.

6. Ágúst Erling Kristjánsson. Húsasmiður.

7. Eyrún Haraldsdóttir. Tómstunda- og félagsmálafræðingur.

8. Zindri Freyr Ragnarsson Caine. Guðfræðingur & bókavörður.

9. Þorsteinn Ívar Þorsteinsson. Matreiðslumaður.

10. Þórdís Jóna Guðmundsdóttir. Hjúkrunarfræðingur.

11. Hafdís Víglundsdóttir. Sjúkraliðanemi & starfsmaður á búsetukjarna.

12. Bergþóra Sigurðardóttir. Öryrki.

13. Stefán Jónasson. Eldri borgari og fyrrum bæjarfulltrúi.

14. Hafdís Ástþórsdóttir. Hársnyrtimeistari & móðir.

15. Bjartey Hermannsdóttir. Bókari.

16. Friðrik Björgvinsson. Framkvæmdastjóri.

17. Hrefna Valdís Guðmundsdóttir. Skjalavörður

18. Hörður Þórðarsson. Leigubílstjóri.

bottom of page